Þjónusta
Sem múrverktaki undir stjórn múrarameistara tökum við að okkur flísalagnir, múrverk, plötusteypu og viðgerðir fyrir heimili og fyrirtæki um allt land – og allt sem þarf til að klára verkið vel.
Flísalagnir
Vönduð flísalögn fyrir baðherbergi, eldhús, forstofur og önnur votrými – bæði í nýbyggingum og við endurbætur á eldra húsnæði.
- Flísalögn á gólf og veggi
- Votrými og baðherbergi
- Eldhúsflísar og skvettuveggir
- Náttúrusteinn og stórar flísar
- Fúgun og frágangur
Múrverk
Múrverk og pússning innan- og utanhúss, unnið af vandvirkni með áherslu á endingu og gott yfirborð fyrir næstu skref í verkinu.
- Pússning á veggjum og gólfum
- Múrverk utanhúss
- Undirbúningur fyrir flísalögn
- Frágangur á steyptum flötum
Plötusteypa
Steypa plötur fyrir sólpalla, innkeyrslur, gólf og aðra fleti – með vandaðri undirvinnu, réttri járnabendingu og einangrun fyrir endingargóða niðurstöðu.
- Steypa og frágangur á plötum
- Vélslípun
- Sólpallar, innkeyrslur og gólfplötur
Viðgerðir og viðhald
Viðgerðir á sprungum, skemmdri steypu og eldri flísalögnum – við lengjum líftíma yfirborða og komum í veg fyrir frekari skemmdir.
- Steypuviðgerðir
- Viðgerðir á sprungum og rakaskemmdum
- Endurnýjun á eldri flísalögnum
- Almennt viðhald
Ekki alveg viss hvað þú þarft?
Sendu okkur lýsingu á verkefninu og við ráðleggjum þér næstu skref.
Fá ráðgjöf og tilboð